Uppsetning og notkun MyWork

Lauflétt vefforrit sem smellpassar í þitt umhverfi

Umhverfið í MyWork

MyWork byggir á „.NET Core“ umhverfinu sem er hluti af hinum stóra hugbúnaðar- og lausnaheimi hjá Microsoft. Bakendi og grunnkóði kerfisins er í C# forritunarmálinu og virkni í framenda er kóðuð með TypeScript. MyWork keyrir í öllum nýjustu vöfrum, bæði tölvum og öðrum smærri skjátækjum og viðmótið er einfalt, samræmt og skalanlegt.

Villuhætta er lítil í MyWork og eru allar aðgerðir og breytingar í kerfinu sjánlegar hjá stjórnendum. Hægt er að keyra MyWork í vefskel sem er sjálfstætt app með flýtihnappi á skjáborði eða tækjastiku notandans. Því virkar MyWork sem sjálfstætt app í tæki notandans sem hægt er að opna sjálfkrafa við innskráningu starfsmanns. MyWork er því alltaf lifandi og með auðvelt aðgengi.

Hýsing og gagnatengingar

MyWork er selt og afhent sem sjálfstætt kerfi til kaupanda og hefur hann fullt eignarhald og yfirráð yfir öllum gagnagrunnum og þeirri útgáfu kerfis sem gildir á kaupdegi. Hýsing og rekstur kerfis er ekki innifalið í söluverði en seljandi getur sinnt kerfisþjónustu við kaupendur sem þess óska og ráðlagt þeim við að tryggja virkni kerfisins.

Hægt er að setja MyWork upp á innraneti fyrirtækis, einskorða netföng notenda við ákveðin lén, útiloka samtímanotendur og fleira til að koma í veg fyrir óheimilar aðgangstilraunir. MyWork getur tengst notendaskrá fyrirtækja (Active Directory) til að auðvelda frekar innleiðingu og notkun. Hægt er að stofna og stilla notendur eftir mörgum víddum, gefa þeim heimildir í ákveðna hluta kerfisins og afmarka upplýsingar sem eru viðkvæmar við ákveðna notendur innan sama fyrirtækis.

MyWork getur einnig tengst þeim gagnagrunnum sem eru til staðar; t.d. viðskiptamannaskrám og sölureikningum í fjárhagskerfi. Einnig býður MyWork uppá möguleika á samþættingu við Teams, Office365 og Sharepoint umhverfi Microsoft.

Viðbætur og aðlaganir

Grunnhugsun MyWork skiptist í Viðskiptamenn > Verkefni > Tímar. Engu að síður eru allir möguleikar til staðar þegar kemur að aðlögun og viðbótum við keðjuna sem MyWork heldur utan um. Það gæti verið kerfishluti fyrir verkkostnað, dagpeninga og ferðaskýrslur, vaktir, gagnasvæði viðskiptavina, beinar gagnatengingar við ytri aðila, kerfishlutar fyrir fasteignir og aðrar rekstrartengdar einingar.

MyWork er ekki bara fyrir bókara - heldur getur auðveldlega aðlagast þínu rekstrarumhverfi og uppfyllt ýmsar sérþarfir sem skapa virði fyrir þitt fyrirtæki. Í raun eru ótakmörkuð tækifæri til að gera MyWork að þínu og að því kerfi sem fullkomnar heildina.


Kynntu þér möguleika MyWork

Hafðu samband fyrir frekari upplýsingar.
Byrjum spennandi tíma með þér!

MyWork er þróað og smíðað af EQ Tech.
Síminn er 790-8090 og tölvupóstur er mywork@mywork.is.